Hátt í fimmtíu bílar voru fastir á veginum sem liggur yfir Möðrudalsöræfi á milli Jökuldals og að Vopnafjarðarafleggjaranum í gær. Harðduglegur strákur sinnti vegaaðstoð og reyndi eftir fremsta megni að losa bíla sem margir voru illa búnir og ófjórhjóladrifnir húsbílar í leigu erlendra ferðamanna.

