Á hverjum föstudegi myndast sérstakt andrúmsloft í húsnæði Hugarafls. Þar safnast saman karlar á ólíkum aldri, með ólíkan bakgrunn og ólíkar lífssögur en með eitt sameiginlegt markmið: að fá öruggt rými til að tala um líðan sína, geðheilsu og það sem býr undir yfirborðinu.

